Meiri snjór

Góðan dag!

Í dag, eins og seinustu daga, snjóar. Hér hefur verið tölvert frost seinustu viku, allt frá -8 og niður í -16 gráður. Get samt ekki kvartað, vetur konungur lét ekki til sín taka fyrr en um miðjan janúar. Og nú þar sem dagarnir eru orðnir svo langir, þá getur ekki verið langt þar til vorið fer að láta til sín taka.

Las í blöðunum hér, að fólk hafi setið fast í bílum í suður Noregi alt í 20 klukkustundir. Það er bæði hér og í suður Noregi sama ástand og í Reykjavík þegar það kemur snjór. Allt fer í kerfi. Við sem vitum hvað norðlensk stórhríð er brosum nú bara að þessum köppum Grin

Sem betur fer var ég búinn að setja upp viðarofninn sem við hjónaleysin fengu í jólagjöf. Þar hefur verið kynt vel seinustu viku. Gamli ofninn inni í borðstofu stendur líka fyrir sínu.

Annars er heimilisfólkið hálf lasið um þessar mundir. Brjósklosið hrjáir ennþá kallinn, Charlotte er orðinn ansi kvefuð, einnig Jakob og Emilía, Philip hóstar. Mæja er sú eina sem er nokkurnvegin eins og hún á að sér. Engu að síður þá líður okkur vel og það er fyrir hinu besta.

Vegna brjósklosins hef ég unnið mikið heima þessa viku, það er alveg magnað að hafa þann möguleika. Og þar sem það freistar ekki að liggja lengur í rúminu, þá er ekkert mál að fara á fætur um 7 leitið, fá sér kaffi og setjast við lestur og vinna samhliða á tölvuna.

Líklega fæstir sem vita út á hvað vinna mín gengur. Því skal ég bæta úr nú.

Ég er verkefnastjóri (prosjekt manager) hjá 6 sveitarfélögum (með 80.000 íbúa). Þar er ég ábyrgur fyrir fræðilegs hluta við innkaup á sameignilegu landfræðilegu upplýsingarkerfi og kerfi sem er notað við skráningu og viðhald á m.a. fasteignargjöldum, sorphirðu með meiru. Upphaflega átti verkinu að vera lokið 1. nóvember í ár, en það verður öruglega framlengt. Þetta er mjög stórt verkefni, margir sem eiga hlutdeil að því og mikið sem þarf að samkeyra. Við erum kominn það langt að nú eru fjögur fyrirtæki sem slást um samninginn. Það næsta sem gerist er að við förum út í fyrirtækin og kynnum okkur hvernig þau leysa verkefni sem við höfum úthlutað þeim. Allar okkar ákvarðanir verða að vera vel rökstuddar, því verkefnið fylgir reglum um innkaup hjá hinu opinbera, og þær reglur eru strangar í Noregi. En þetta er skemmtilegt verkefni, maður lærir eitthvað nýtt á hverjum degi.

 

Kveðja frá Noregi


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rúnar Birgir Gíslason

Sæll frændi

Gaman að geta fylgst með þér hér, maður var alveg dottin út úr og hvað þú ert að gera þarna í Noregi og næstum dottinn út úr fjölskylduhögum þínum.

Hér í Baunaveldi er annars allt á kafi í snjó svipað og í Noregi.

kv

Rúnar Birgir Gíslason

Rúnar Birgir Gíslason, 23.2.2007 kl. 08:53

2 identicon

Eru thetta ekk frekar ellimerki en brjosklos ;o) Kvedja, Gunna.

Gunna (IP-tala skráð) 23.2.2007 kl. 13:25

3 Smámynd: Ragnar Bjarnason

Gaman að vita loksins hvað þú ert að sýsla við þarna.

Ragnar Bjarnason, 26.2.2007 kl. 16:15

4 Smámynd: Ragnar Bjarnason

Það er nú hellingssnjór hérna hjá okkur sko.

Ragnar Bjarnason, 2.3.2007 kl. 14:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband