20.1.2008 | 11:03
Saltstöng í augað!
Góðan dag.
Blessuðum börnunum tekst ýmislegt. Rétt áðan kom Mæja til mín grátandi og sagði að Emilía hefði hent saltstöng í augað á henni. Ég hló bara að þessari vitleysu í Maríu en athugaði samt augað. Og viti menn, þar fann ég bita af saltstöng...... Bitinn var tekinn úr auganu og stelpan hljóp inn í stofu til að leika meira við Emilíu.
Hefði Raggi bróðir einhvertímann reynt að henda saltstöng í augað á mér, þá hefði hann fengið glóðarauga á báðum
Veðrið hjá okkur er ljómandi, við frostmark, léttskýjað og logn. Að heita snjólaust og þannig hefur það verið í vetur. Alveg ljómandi.
Kveðja frá Noregi
Hannes
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.